Hún Unnur María sippaði sér léttilega upp á rekkann í Bónus til að koma nýjum vörum fyrir

25. september 2026

Hvar eru nú svörtu plastpokarnir aftur?, varð mér á orði við einn nálægan viðskiptavin þegar ég var í Bónus.


Ekki þurfti hann að svara - því mér var svarað um hæl; og það að ofan!


Það var hún Unnur María Helgudóttir, verslunarmaður í Bónus, sem svaraði og það úr „efstu hillu“ eins og íþróttamönnum á Sýn er svo tamt að nota um þá íþróttamenn sem skora sérlega glæsileg mörk.


Við, sem erum frumbyggjar í Grafarvoginum og skjótumst í Bónus í Spöngina, (þótt við vitum ekki enn hvar plastpokarnir eru) könnumst auðvitað við mörg þeirra sem þar vinna.


Þekkjum andlitin, eins og það er orðað. Unnur María er ein af þeim; jafnan hress, brosmild, dugleg og mjög liðleg.


Og þetta með efstu hilluna var ekkert mál fyrir hana. Góðar tröppur og svo sippaði hún sér léttilega upp á rekkann til að taka aðeins til og koma nýjum vörum betur fyrir.


Gaman að þessu. Og það var auðsótt að fá að taka mynd af henni.


Persónuleg þjónusta. Svona á að gera þetta!


Það eru ekki bara starfsmenn á gólfi eða plani í Bónus í Spönginni. - JGH

Unnur María Helgudóttir, verslunarmaður í Bónus, hafði sippað sér léttilega upp á rekann og vísaði mér veginn að svörtu plastpokunum þaðan.

Unnur María. Kunnuglegt andlit í Bónus í Spönginni. Jafnan brosmild og liðleg. Og auðvitað brosti hún til okkar úr „efstu hillu“, eins og íþróttafréttamennirnir á Sýn orða hlutina um það sem vel er gert.