Stórhætta við Sævarhöfðann - glannaakstur við biðröðina í Sorpu

26. maí 2026

Það hafa verið langar biðraðir við Sorpu við Sævarhöfðann í gær og í dag - og það verður að segjast eins og er að þetta fyrirkomulag biðraðarinnar er stórhættulegt.


Þegar Grafarvogur.net var þarna á ferð í dag og í gær óku bílar mjög greitt framhjá röðinni þótt hún liggi meira og minna úti á götu en sé ætlað að vera í kantinum.


Þess utan þurfa bílar í röðinni að taka vinstri beygju yfir veginn og inn að innkeyrslunni í Sorpu - og það eitt og sér skapar stórhættu.


Litlu munaði að þarna yrði óhapp í dag. Þess utan eru menn farnir að leggja fyrir framan röðina - ef þeir eru með lítilræði - og skjótast með það fótgangandi yfir í Sorpu.


Sorpa verður flutt af Sævarhöfðanum síðla sumars upp að Lambhagavegi í Úlfarsárdal þannig að vissulega er það rétt að þetta fyrirkomulag með biðröðina er ekki komið til að vera.


En það er sama - það er stórhættulegt og fyllsta ástæða til að fara þarna með gát. - JGH

Þetta fyrirkomulag biðraðarinnar við Sævarhöfðann skapar verulega hættu en beygja þarf úr röðinni yfir götuna til vinstri inn á afleggjarann að Sorpu.