Fimm krossa fáni í Hamrahverfi - varamarkvörður Liverpool er frá þessu landi
Þessi fimm krossa fáni blakti í Hamrahverfi í dag hjá Ólafi Sverrissyni verkfræðingi sem er sérstakur áhugamaður um fána og á stærsta fánasafn einstaklings hér á landi.
Fyrir þá sem hafa áhuga á enska boltanum má geta þess að varamarkvörður Liverpool, Giorgi Mamardashvili, er frá þessu landi en á hann reyndi talsvert í lokaleikjum liðsins þegar aðalmarkvörðurinn Alisson meiddist.
Landið er í Kákasushéraðinu en frá því kom gerill, kákasusgerillinn, sem naut mikilla vinsælda hér á landi á sjöunda áratug síðustu aldar - og átti víst að vera allra meina bót.
Þetta land nær að Svartahafa í vestri, Rússlandi í norðri og Tyrklandi í suðri og heitir Georgia. Íbúar eru á fjórðu milljón. - JGH

Þessi fáni blakti hjá Ólafi Sverrissyni í Hamrahverfinu í dag; fánakarlinum í Grafarvogi.
Suðvestan átt og dágóður vindur.

