Ekkert „viltu vera memm?“ í borginni um ferðahelgina miklu. Dregur til tíðinda í vikunni

25. maí 2026

Við sögðum frá frétt RÚV sl. föstudag um að líklegt þætti að formlegar meirihlutaviðræður í borginni hæfust um helgina. En svo varð ekki. Það mun eflaust draga til tíðinda í vikunni.


Mörgum þykir það taka svolítið langan tíma fyrir Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, að taka af skarið og hefja formlegar viðræður.


Það þýðir samt ekki að ekkert sé að gerast í málunum og ekkert hafi gerst um helgina. Jafnvel þveröfugt; að það sé unnið markvisst á bak við tjöldin í friði frá fjölmiðlum og þess sé gætt að gangur mála leiki og rati ekki til þeirra.


Við sjáum hvað setur - síðasti fundur fráfarandi borgarstjórnar var haldinn í Ráðhúsinu í dag.


Vika er langur tími í pólitík og sjálfsagt verður kominn nýr meirihluti í lok dags, 2. júní. - JGH

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, tók ekki af skarið um helgina með hverjum hún ætlar að vinna að myndun nýs meirihluta.