Stórfín sýning í bókasafninu - Korpúlfum margt til lista lagt!
2. júní 2025
SÝNING KORPÚLFA!
Það er vel til fundið að líta inn á Bókasafnið í Spönginni og skoða sýningu Korpúlfa í myndlistarsal safnsins. Myndirnar og listaverkin eru afrakstur vetrarins og verkin eru til sölu. Opnunarmyndin hér að ofan er eftir Guðnýju Björgu Þorvaldsdóttur.
Hópurinn sem sýnir hefur hist vikulega í Borgum og málað undir handleiðslu Péturs Halldórssonar. Þetta eru ólíkar myndir og gaman að sjá fjölbreytnina.
En sjón er sögu ríkari. Sýningunni lýkur í vikulok, eftir hádegi nk. föstudaginn, 6. júní. Um að gera að setja sig í listagyðjugírinn, skoða sýninguna og fá sér góðan kaffibolla á safninu í leiðinni. - JGH

Þessum verður brátt ýtt úr vör. (Mynd eftir Bergstein Pálsson).

Brimið sverfur. (Mynd eftir Guðrúnu Björgu Ingibjartsdóttur).

Undir fossins nið.
(Mynd eftir Jónu Berg Andrésdóttur).

Fallegar vatnslitamyndir og sú neðri til vinstri á forsíðu kynningarspjalds sýningarinnar. (Myndir eftir Sigurjón Gunnarsson).

Stolt sigla fleyin mín. (Myndir eftir Steinar Gunnarsson).

Tískulínur. (Myndir eftir Lucindu Árnadóttur).

Bikarar bíða sinna blóma. (Mynd eftir Gylfa Theódórsson).

Jökultoppar. (Mynd eftir Ingibjörgu Andrésdóttur).