Veðurskellur, grámugga yfir Esjunni - 22 metrar á sekúndu í mestu hviðunum
3. júní 2025
VEÐURSKELLUR! Það hefur heldur betur verið skellur í veðrinu undanfarinn sólarhring og fyrsta vikan í júní byrjar ekki vel eftir ágætis tíð undanfarnar vikur.
Það var enda mikil grámugga yfir Esjunni í hádeginu og hráslagalegt í meira lagi. Ágætt þó miðað við snjókomu og slyddu fyrir norðan.
Samkvæmt Veðurstofunni fóru vindhviður í Reykjavík í hádeginu upp í 22 metra á sekúndu sem þýðir að það tók vel í. Sem betur fer er þetta skellur því það á að lægja þegar líður á vikuna.
Víða mátti sjá fallið lauf af trjám í görðum í Grafarvogi í hádeginu.
Margir minnast kuldahvells á sama tíma í fyrra - í fyrstu vikunni í júní.
- JGH

Hráslagalegt víða í görðum eftir að laufblöð höfðu fokið af trjám í veðurhvellinum.

Veðurspáin fyrir suðvesturhornið. Það gustar heldur betur um landsmenn. Vindhviður í Reykjavík fóru í 22 metra á sekúndu í hádeginu.