Auðvitað er þetta til háborinnar skammar! Ekkert annað!

1. júní 2025

SMÁNARBLETTIR. Auðvitað er þessi vanhirða borgarinnar til háborinnar skammar og ekkert annað. Í þessari viku verða liðnar þrjár vikur frá því Grafarvogur.net varpaði fram þeirri spurningu hvort ekki væri kominn til að slá gras, fífla og njóla við gangstéttir og vegkanta hér í Grafarvogi. 


Tæpri viku síðar, 19. maí,  var þeirri skoðun slegið fram að þessir óslegnu og vanhirtu grasbalar settu svartan blett á borgina - og nefndi ég þá smánarbletti borgarinnar. Grastopparnir voru þá víða komnir í hálfan metra við vegkanta.


Ýmsir brugðust þá að vísu við með því að telja þessa órækt hið besta mál - og aðrir létu að því liggja að gagnrýnin snerist um flokkspólitík. Aðhald og krafa um snyrtimennsku kemur flokkspólitík auðvita ekkert við. 


Grafarvogur.net skorar á borgaryfirvöld að setja meiri metnað í snyrtimennsku - og að sláttur og almenn umhirða í úthverfum borgarinnar verði framar í forgangsröðinni. Vilji er allt sem þarf!  - JGH

Við Gullinbrú - fjölförnustu götu Grafarvogs.

Í Hamrahverfinu. Hljóð sláttuvéla glymur í görðum en það er ekkert að frétta hjá borginni.

Ólíkt hafast bæjarfélögin að. Löngu byrjað að slá í Kópavogi og snyrtimennskan í fyrirrúmi.