Stemning þjóðhátíðar liggur núna í loftinu í Hagkaup í Spönginni! Tilkomumiklar blöðrur!
Það fer ekki á milli mála að 17. júní er að nálgast þegar komið er inn í Hagkaup í Spönginni. Stemning þjóðhátíðar liggur þar útblásin í loftinu og verður að segjast eins og er að blöðrurnar eru tilkomumiklar og engar venjulegar blöðrur eins og flestir þekkja þær.
Að sögn starfsmanns Hagkaups eru strumparnir að venju vinsælir en það er mjög mismunandi hvaða selst mikið af blöðrum eftir tegundum.
Sjón er sögu ríkari.
Þær eru svolítið öðru vísi en þessar sem maður dundaði sér við að blása í hér loftlaus á árum áður. Raunar fyrir mörgum árum.
En það styttist í hæ, hó, jibbí jei. - JGH

Þessi blaðra helst örugglega lengi á lofti; þyrla af bestu gerð.

Köngulóarmaðurinn, spiderman, er vinsæll og getur hangið lengi í loftinu.

Sjóræningjarnir sigla seglum þöndum. Þessi er fyrir stuðningsmenn pírata.

Þessi þjóðhátíðarstrumpur er brosmildur og fjörugur - og klár fyrir 17. júní.

