Snyrtilegt og fínt í Hafnarfirði! Alveg til fyrirmyndar.
14. júní 2026
Við á Grafarvogur.net áttum leið í Hafnafjörðinn um helgina og var ánægjulegt að sjá hvernig grasbalar við Reykjavíkurveginn eru snyrtilegir og vel slegnir og hirtir.
Alveg til fyrirmyndar!
Og svolítið önnur lína en margir virðast vilja sjá núna við helstu umferðaræðar.
Sömuleiðis í takt við það sem þekktist á árum áður á höfuðborgarsvæðinu þegar borgin og bæjarfélögin lögðu upp úr að snyrta, slá og hirða svo allt væri sem glæsilegast fyrir þjóðarhátíðardaginn. - JGH

Vel snyrt og slegið við Reykjavíkurveginn í Hafnarfirði - alveg til fyrirmyndar.

