Stelpurnar Kráka og Kíra voru ánægðar að göslast um í fyrsta snjó vetrarins

14. nóvember 2026

Hún var skemmtileg færslan hjá Karlottu Pálmadóttur, íbúa í Hamrahverfinu í Grafarvogi, á FB-síðu hennar af dömunum tveimur sem búa hjá henni, þeim Kráku og Kíru. „Stelpurnar mjög ánægðar með snjóinn,“ skrifar Karlotta með þessari mynd af þeim stelpum að göslast um í fyrsta snjó vetrarins í höfuðborginni sem féll fimmtudaginn 12. nóvember.


Kráka er verulega eldri en Kíra. Hún er 13 ára en Kíra 6 ára. Þær eru af kínversku hundakyni, Shih Tzu, en það kyn er sagt geta orðið allt að 20 ára. Systkini Kráku heita Krummi og Kría. Þannig að það er nóg af k-um í ættinni.


Við á Grafarvogur.net hittum Karlottu með þær Kráku og Kíru í gönguferð nokkrum dögum fyrir kosningarnar sl. vor. Þá var svo sannarlega vor í lofti og dömurnar tvær eldhressar. Þær ætluðu samt ekki að kjósa. Sjá göngutúraspjallið sl. vor við Karlottu hér.


Skemmtilegt. Göslast um áhyggjulausar í snjónum og vetrarríkinu á meðan mannfólkið hugar að mannbroddum og nagladekkjum.


Heimur ferfætlinganna í Hamrahverfinu er ekki flókinn. - JGH

Skemmtileg færsla hjá Karlottu.

Karlotta með þær Kráku og Kíru í gönguferð í Hamrahverfinu sl. vor, nokkrum dögum fyrir kosningarnar.