Hildur tekur harða afstöðu gegn veggjöldum um stofnvegi innan borgarinnar

12. nóvember 2026

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri tekur heldur betur harða afstöðu gegn tollahliðum og veggjöldum um gamla stofnvegi innan borgarinnar, eins og t.d. um Ártúnsbrekkuna, í viðtali í Morgunblaðinu í morgun og segir borgina tilbúna til að beita skipulagsvaldinu haldi ríkið þessum hugmyndum áfram til streitu. Viðtalið við Hildi er aðalfréttin á forsíðu.


Hún segir að þessi afstaöa borgarinnar hafi komið skýrt fram á fundum með ráðherrum. Það vekur auðvitað mikla athygli allra að bæði Hildur og Ari Edwald hafa komið fram að undanförnu og rætt þessi mál og því er ljóst að um þetta er rætt af fullri alvöru innan ríkisstjórnar og ráðuneyta. Miðað við viðbrögð við frásögn okkar í gær um lauslegt mat Ara Edwald að veggjöld um Ártúnsbrekku gætu kostað hvert heimili í Grafarvogi og eystri byggðum borgarinnar um hálfa milljóna kóna á ári í aukna skatta af akstri um borgina - þá telja flestir Grafarvogsbúar þessar hugmyndir ríkisins svo galnar að þær nái engu tali og í raunni skortir fóllk orð yfir þeim.


 „Við höfum verið alveg skýr með það, bæði á opinberum vettvangi og á fundum okkar með ráðherrum, að við munum ekki sætta okkur við að sett verði upp tollhlið fyrir almenna umferð á gömlum stofnvegum í Reykjavík. Við erum hins vegar reiðubúin til að fjármagna t.a.m. ný jarðgöng eins og Miklubrautargöng eða Sundabraut eða sambærileg verkefni með veggjöldum í einkaframkvæmd þar sem fólk á þá jafnframt kost á annarri gjaldfrjálsri leið, en getur flýtt sinni för með því að fara um þessar nýju leiðir gegn gjaldi,“ segir Hildur í Morgunblaðinu.


„Við munum sýna mikla mótspyrnu ef ríkið ætlar sér eitthvað slíkt og get um jafnvel beitt skipulagsvaldinu í þeim efnum. Ég held að það væri mjög fróðlegt að efna til skoðanakönnunar fljótlega meðal íbúa,“ segir Hildur ennfremur í viðtalinu. - JGH

Á fundi Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi á dögunum kom skýrt fram hjá Hildi að ekki kæmi til greina hjá núverandi meirihluta að vegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu verði fjármagnaðar með umferðargjöldum um gamla stofnvegi innan borgarinnar eins og hugmyndir væru uppi um hjá ríkinu. 

Aðalfréttin á forsíðu Morgunblaðsins í morgun.