Stefnt að því að skrá Bláa lónið á makað á næsta ári
HLUTHAFASPJALLIÐ. Stefnt er að því að ljúka skráningu Bláa lónsins á markað á næsta ári, ef markaðsaðstæður og ytri aðstæður leyfa. Þetta kemur fram í hlaðvarpsþætti okkar Sigurðar Más Jónssonar, Hluthafaspjallinu á Brotkast.is. (Sjá klippu hér.)
Frábært félag að mörgu leyti en þarf ekki áhættusækna fjárfesta til að koma þarna inn í ljós þeirra jarðhræringa sem hafa verið á svæðinu?
Enn ríkir mikil óvissa um framvindu jarðhræringa þarna. Verða jarðfræðingar sérfræðingar fjárfesta þegar að útboðinu kemur en lífeyrissjóðirnir eru þegar búnir að fjárfesta verulega í Bláa lóninu. - JGH
Bláa lónið er líklegast þekktasta vörumerki Íslands. En verður eftirspurn í boðuðu hlutafjárútboði Bláa lónsins á næsta ári eftir þær jarðhræringar sem gengið hafa á?