Hugmyndin um að nota nafnið Gullinbrú kom frá Þórhalli Vilmundarsyni prófessor
Það er gaman að rifja upp frétt sem Gísli Kritsjánsson, blaðamaður og félagi minn, skrifaði fyrir mig á Grafarvogur.net fyrir rúmi ári og var um það hvernig nafnið Gullinbrú kom til. Það var Þórhallur Vilmundarson prófessor sem átti hugmyndin að nota þetta nafn sem kemur fyrir í ljóðinu Veturinn eftir þjóðskáldið Bjarna Thorarensen, skáld og dómara í landsyfirrétti, síðar amtmann, en hann bjó lengst af í Gufunesi á árunum 1816 til 1833. Bjarni var raunar fæddur að Brautarholti á Kjalarnesi. Þórhallur stakk einnig upp á nöfnunum Funafold, Logafold, Hverafold, Reykjafold, Fannafold, Frostafold, Jöklafold og Fjallafold. Þegar Þórhallur kom með hugmyndina að nafninu Gullinbrú árið 1983 loguðu síður dagblaðanna í illdeilum um nafnið.
HVER RÍÐUR YFIR GULLINBRÚVU?
Gísli skrifar: „Bjarni snaraði fram fjaðurpenna sínum og skrifaði hugfanginn: „Hver ríður svo geyst á gullinbrúvu hávan af hifin hesti snjálitum….
Þarna var nafnið á Gullinbrú komið en það beið ónotað í 160 ár og hefur líkast til svifið um háloftin. Svo var ákveðið að festa það við nýja brú með vegi yfir sjálfan Grafarvoginn; Gullinbrú.

Bjarni Thorarensen, skáld, dómari og amtmaður, bjó í sautján ár í Gufunesi og þar orti hann ljóðið Veturinn.
Grípum hér niður í grein Gísla Kristjánssonar í Grafarvogur.net frá í fyrra: „Góð sviðsmynd, hugsaði skáldið með sér og vissi ekki að miklar og pólitískar deilur hófust um nafnið réttum 160 árum síðar. Og fleiri orð sem skáldið skreytti list sína með og átti nú að koma í daglega notkun.
Þarna var komið nafnið á nýju brúna upp í Grafarvog þótt liðið væri langt á aðra öld frá veru skáldsins í Gufunesi. Af hverju ekki að fara yfir Gullinbrúvu í hið nýja hverfi?
En, nei það gengur ekki. Ungt fólk skilur ekki svona skáldamál. Er ekki Gullinbrú nóg? Og svo varð.“ Grein Gísla.

Þórhallur Vilmundarson prófessor var forstöðumaður Örnefnastofnunar frá stofnun hennar árið 1969 til 1998 og formaður örnefnanefndar. Hann átti sæti í nýyrðanefnd 1961-1964 og Íslenzkri málnefnd 1964-2001.
BRÉF ÞÓRHALLS TIL BORGARSTJÓRNAR
„Við grípum hér niður í bréf Þórhalls Vilmundarsonar til borgarstjórnar haustið 1983: „Aðalvegurinn upp í Gufunes á að liggja um nýja brú á Grafaravogi og er lagt til að brúin og vegurinn verði nefnd Gullinbrú. Þvert á þann veg, norðan íbúðarhverfisins og sunnan kirkjugarðsins nýja, á að koma aðalbraut upp á Vesturlandsveg, og er stungið upp á að hann heiti Vetrarbraut, sbr. heiti fyrrnefnds kvæðis.
Götunöfn innan hins nýja íbúðarhverfis, austan Gullinbrúar og sunnan Vetrarbrautar, verði valin með hliðsjón af tveimur öðrum frægum kvæðum Bjarna: Eldgamla ísafold og Ísland (Þú nafnkunna landið).
Meginvegurinn (safnbrautin) gegnum hverfið heiti Fjallkonuvegur, en síðari liðir annarra götunafna í hverfinu verði -fold (sbr. Eldgamla ísafold, ástkæra fósturmold, fjallkonan fríð). Fyrri liðir nafnanna verði valdir með hliðsjón af ljóðlínum Bjarna í Þú nafnkunna landið: Fjör kenni' oss eldurinn, frostið oss [herði, fjöll sýni torsóttum gæðum að ná.
UMHVERFIÐ MÓTAR MENNINA
En þessi hugsun, að umhverfið móti mennina, var mjög uppi á dögum Bjarna, og má rekja hana til franskra heimspekinga á 18. öld (Montesquieu). Átta íbúðargötur fái samkvæmt þessu nöfnin Funafold, Logafold, Hverafold, Reykjafold, Fannafold, Frostafold, Jöklafold og Fjallafold.
Gatan, sem liggur við viðskipta- og menningarmiðstöð hverfisins, fái nafnið Fjörgyn með hliðsjón af þeirri hugsun í kvæði Bjarna, að baráttan við náttúruöflin auki mönnum fjör. Nafnið Fjörgyn „Jörð“ kemur fyrir í kvæði Bjarna, Vetrinum. Það er kvenkynsorð og beygist eins og hið kunna norska borgarnafn Björgvin eða Björgyn (eignarfall Fjögrynjar).
Sumir málfræðingar hafa talið nafnið samstofna no. fjör „líf“, og a.m.k. minnir nafnið Íslendinga á líf og fjör.
Reykjavík, 10. okt. 1983. Þórhallur Vilmundarson.

Frétt í laugardagsblaði Morgunblaðsins, 10. október 1983, um bréf Þórhalls til borgarstjórnar um götuheiti í Grafarvogi.

Grafarvogskirkja stendur við götuna Fjörgyn en Þórhallur Vilmundarson prófessor kom með hugmyndina að nota það nafn á götuna og var það með hliðsjón af þeirri hugsun í kvæði Bjarna að baráttan við náttúruöflin auki mönnum fjör.

Gullinbrú. Í rauninni tvær brýr. Miklar deilur urðu um nafnið þegar Þórhallur Vilmundarsson stakk up á því árið 1983.

Ljóðið Veturinn sem Bjarni Thorarensen skáld, dómari og amtmaður orti í Gufunesi. „Hver ríður svo geyst á Gullinbrúvu?“

