Sorpa flytur úr Sævarhöfðanum í ágúst í sumar ef allt gengur samkvæmt áætlun

5. maí 2026

Það hefur verið þægilegt fyrir þá sem búa í sunnanverðum Grafarvogi að skjótast í Sorpu við Sævarhöfðann. Á því verður breyting í ágúst þegar endurvinnslustöðin flytur upp í Úlfarsárdal við Lambhagaveginn. Verður svo sem ekki mikið mál að skjótast þangað.


Það að skjótast í Sorpu hét á árum áður „að fara á haugana“ - það var jú farið á haugana til að henda drasli. Í sumum tilvikum komu „góðir hirðar“ með stærri farm til baka.


Svo þegar Sorpa setti upp móttökustöðvarnar urðu sorphaugaferðirnar fágaðri; draslinu var flokkað í gáma. Það var til mikilla bóta.


Ungir Grafarvogsbúar vita ef til vill ekki af því að einhverjir stærstu sorphaugar höfuðborgarsvæðisins voru um árabil á svæðinu rétt við Gufunesbæinn þar sem núna er hinn frægi frístundagarður.


Þar var öllu rótað saman. Núna hvarflar ekki að neinum að þarna hafi verið öskuhaugar.


Þetta var veröld sem var. - JGH

Vorið leynir sér ekki í Sorpu við Sævarhöfðann. Hér eru nokkrar hríslur á stæðinu og eitt dekk. Að ári verður bingur sem þessi í Úlfarsárdalnum en þar er verið að setja upp mikla endurvinnslustöð Sorpu við Lambhagaveginn. 

Fata af þessari mold fer ekki inn í neinn bíl nema hún sé með kyrfilega öflugu loki - slíkur er fnykurinn.

Ungir Grafarvogsbúar vita ef til vill ekki af því að hér voru um árabil einhverjir stærstu sorphaugar höfuðborgarsvæðisins.