Vagga og velta - andapar í góðu yfirlæti í Hamrahverfinu og goggaðist í grasið

5. maí 2026

Þetta stokkandapar trítlaði um í grasinu í slíkum rólegheitum í Hamrahverfinu að það var nánast einum of; það lét ekkert trufla sig. Fyrr má nú vera slökunin.


Göngulagið var „vagga og velta“.


Þarna var ekki gömlu danssveiflunni fyrir að fara þar sem við „vöggum og veltum villt og dátt, veltum og spriklum dag og nátt,“ eins og segir í laginu.


Aldrei þessu vant var steggurinn á undan og kollan á eftir - hún rak karlinn áfram til verka. Svo sem ekki nýtt af nálinni.


Svartþrestir sóttu í svæðið þeirra. Það er víða von á æti þegar goggast er í grasið.


Vonandi eru hlýindi vorsins handan við hornið. - JGH

Svartþrösturinn lét sjá sig þegar þetta stokkandapar vaggaðist um og goggaðist í grasið í Hamrahverfinu.