Þeir mættu koma oftar að tæma
Grafarvogsbúar eru duglegir við að flokka og þannig er það hér á heimili undirritaðs. Meira að segja ílátin eru skoluð áður en þau fara í tunnurnar. En það er einn hægur á þjónustunni; þeir mættu koma oftar og tæma.
Plastið og pappinn hleðst upp þótt við séum aðeins tvö í heimili - og það er mikil þjöppun í gangi í tunnunum, samþjöppun sem þarf þó ekki að bera undir samkeppnisyfirvöld.
Sorpþjónustan komst raunar í fréttirnar fyrir kosningar þegar úttekt Viðskiptaráðs var birt. Í skýrslunni kom fram að sorphirða er dýrust í Reykjavík og það sem meira er; íbúar borgarinnar eru óánægðastir allra sveitarfélaga á höfuðborgar með þjónustuna.
Hér á bæ er þessi spurning of algeng: „Veistu hvort þeir séu búnir að tæma?“
„Ég á ekki von á því,“ er yfirleitt svarið. - JGH

Takk fyrir að flokka! - Já, það var ekkert, en þið mættuð koma oftar og tæma!

Reykvíkingar eru óánægðastir allra með sorphirðu við heimili.

