Snjóbræðsla í Grafarvogi á þremur sólarhringum - gengið hratt á skaflana
8. apríl 2026
Það hefur gengið hratt á skaflana í rigningu og hlýjunum síðustu daga. Þegar við vorum á ferð um Grafarvoginn eftir hádegi á sunnudag, páskadag, var sannarlega vetrarríki og gul viðvörun í kortunum fyrir annan í páskum.
Upphafsmyndin er tekin í Hamrahverfinu, Lokinhömrunum, með þriggja sólarhringa millibili. Búið að moka upp góðum skafli og útlit væri fyrir að ætti langt í land með að hverfa. Myndin í hringnum er tekin eftir hádegi í dag og skaflinn ekki svipur hjá sjón.
Þetta er fljótt að gerast þegar hlýindi bresta á; alvöru snjóbræðsla. - JGH

Kl. 14:35 á sunnudag, 5. apríl. Fyrir neðan verslunarmiðstöðina Torgið, Hverafold 1.

Kl. 15:39 í dag, 8. apríl. Fyrir neðan verslunarmiðstöðina Torgið, Hverafold 1.

Í Lokinhömrum. Horft niður Gerðhamrana eftir hádegi á sunnudag, páskadag, 5. apríl.

Í Lokinhömrum eftir hádegi í dag, miðvikudaginn 8. apríl.


