Lóan komin í Geldinganesið. Kom óvenju snemma til landsins í ár, eða 7. mars
Það var ánægjuleg færsla sem Grafarvogsbúinn Björn Júlíus Grímsson setti inn á FB í gær um að hann hefði séð til lóu í Geldinganesi.
„Lóan er komin að kveða burt snjóinn, að kveða burt leiðindin, það getur hún,“ orti Páll Ólafsson.
Yfirleitt kemur lóan til landsins á bilinu 24. mars til 30. mars.
Í Morgunblaðinu segir að lóan hafi komið óvenju snemma í ár, eða 7. mars. sl. Segir ennfremurr að lóan hafi ekki komið til landsins svona snemma síðan árið 2012 þegar heyra mátti lóusöng óma um Eyrarbakka þann 5. mars það ár.
Vetrarstöðvar íslensku heiðlóunnar (Pluvialis apricaria) eru á Bretlandseyjum og á vesturströnd meginlands Evrópu, frá Jótlandi allt suður til Gíbraltar. Auk þess hefur merkt lóa endurheimst við strendur Marokkó, segir á Vísindavef Háskóla Íslands.
Talið er að lóan fljúgi á um 60 km hraða og það taki hana því um sólarhring að fljúga frá Skotlandi til Íslands sem eru um 1.100 km. - JGH

Lóan kom óvenju snemma til landsins í ár, eða 7. mars. Hún er komin í Geldinganesið blessunin.

Geldinganesið á páskadag. Farfuglarnir tínast til landsins hver af öðrum. Vonandi verður ekkert alvöru vorhret sem leikur fuglalífið grimmt í miðju varpi.

