Hér eru málshættirnir sem komu úr eggjunum í veislu páskadagsins. „Auðs aflar iðin hönd.“

6. apríl 2026

Ef það er eitthvað eitt sem gerir páskaeggin spennandi - fyrir utan súkkulaðibragðið gamla góða - þá eru það málshættirnir. Í mörgum veislum á páskadag þar sem páskalambið setur svip sinn á matseðilinn hefur færst í vöxt að gestir fái smáegg og lítill gestaleikur í kjölfarið þar sem hver og einn les sinn málshátt.


Við vorum þrettán talsins í páskaboði okkar í Grafarvoginum á páskadag og þessir ágætu málshættir komu upp úr eggjunum og vöktu gleði og kátínu þegar þeir voru lesnir upp:


  1. Jöfnum þykir best saman að búa.
  2. Eigi veldur sá er varar annan.
  3. Sá einn veit sem reynir.
  4. Betur duga tveir fuglar til hreiðurs en einn.
  5. Daunill eru digurmælin.
  6. Vandratað er meðalhófið.
  7. Auðs aflar iðin hönd.
  8. Sá er sæll er sínu ann.
  9. Kulnar eldur nema kyntur sé.
  10. Þangað kemur kötturinn sem honum er klórað.
  11. Enginn getur þjónað tveimur herrum.
  12. Kólnar heitt ef köldu er á blásið.
  13. Framkvæmd fylgir frami og gæfa.


Það var ánægjulegt að enginn fékk sama málsháttinn en það var í fyrsta sinn sem það gerist í páskaboði fjölskyldunnar.  - JGH

Málshættir úr eggjunum eru auðvitað hluti af páskahátíðinni.

Stutt í borðhald, páskalamb og smáeggin. Guli liturinn er áberandi um páskana á öllum heimilum.