Fresturinn útrunninn. Skrúfað fyrir vatn og rafmagn í byggð hjólahýsa við Sævarhöfðann
Skrúfað hefur verið fyrir vatn og rafmagn hjá íbúum í „byggð“ hjólhýsa og húsbíla sem er við gömlu sementstakana við Sævarhöfðann, samkvæmt frétt Vísis þar um.
Eigendur húsbíla og hjólhýsa á svæðinu höfðu frest til 1. nóvember til að yfirgefa svæðið en lítið fararsnið virðist á þeim. Það gæti því dregið til tíðinda næstu daga í þessu annars sérstaka máli og umræðan á sjálfsagt eftir að stigmagnast í fjölmiðlum.
Það var um miðjan júní sem nýr meirihluti í borginni rifti samningi fyrrverandi meirihluta við forsvarsmenn óstofnað félags, Samtaka hjólabúa, um afnot af spildu í Gufunesi undir þessa „hjólhýsabyggð“ sem svo hefur verið nefnd. Sjá frétt okkar á Grafarvogur.net. Ekki er að sjá að Samtök hjólabúa hafi gert viðeigandi ráðstafanir frá því um mitt sumar um að færa sig í ljósi þess að rýma þyrfti svæðið við Sævarhöfðann fyrir 1. nóvember og Gufunesið var ekki í boði. Tímaglasið tæmdist. En hvert eiga þau að fara - og er það borgarinnar að finna út úr því? Þar liggur vandinn og sá hnútur hefur ekki verið leystur.
Það var sumarið 2023 sem íbúum í „hjólhýsabyggðinni“ var gert að yfirgefa tjaldsvæðið í Laugardal. Þeir fengu í staðinn afnot af hinu hrörlega svæði við Sævarhöfðann til bráðabirgða. Sá staður hefur hentað illa að flestra mati - líka að mati Samtaka hjólabúa.
Það var svo eitt af síðustu verkum síðasta meirihluta í borginni undir forystu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur að gera umræddan samning við Samtök hjólabúa um afnot af spildu í Gufunesi en þeim samningi var rift um miðjan júní sl., eins og fyrr segir, og varanlegur samastaður hjólabúa ekki fundinn í staðinn.
Fram hefur komið hjá núverandi meirihluta að hann telji hjólhýsabyggðina hvorki ákjósanlegt fyrirkomulag né lögmætt samkvæmt gildandi rétti.
Varanleg lausn sýnist því ekki í sjónmáli. - JGH

„Byggð“ húsbíla og hjólhýsa við Sævarhöfðann. Nú hefur verið skrúfað fyrir rafmagn og vatn.

Hjólhýsi og húsbílar við Sævarhöfða.

Spildan í Gufunesi sem síðasta meirihluti í borginni afhenti Samtökum hjólabúa með samningi sem núverandi meirihluti rifti snemma í júní eða fljótlega eftir að hann tók við.


