Fékk fyrir mistök 9.250 kr. bílastæðareikning - „Bilun í myndavélakerfi við Egilshöll“

3. nóvember 2026

Jón Þorbjörnsson, íbúi í Grafarvogi, segir frá því í færslu á FB-síðu sinni í dag að hann hafi fyrir mistök fengið reikning frá innheimtufyrirtækinu GreenParking upp á 9.250 kr. Ekki kannaðist hann við fyrirtækið. Þegar hann leitaði nánari skýringa þá reyndist ástæðan vera „Bilun í myndavélakerfi við Egilshöll.“


Gera má ráð fyrir að þúsundir Grafarvogsbúa hafi fengið senda reikninga í svipuðum dúr og Jón og með vanskilaálagi. Jón segist ekkert hafa lagt við Egilshöll, aðeins ekið um bílastæðið í skutlþjónustu.


Krafan hefur verið felld niður.

Jón Þorbjörnsson, íbúi í Grafarvogi í yfir 30 ár og fyrrum þekktur markvörður Þróttar og Skagamanna í knattspyrnu, fékk óvænt reikning frá GreenParking sem hann þekkti engin deili á og hann fór í málið.

Jón segir orðrétt í færslu sinni á FB-síðu sinni:


„Ég fékk rukkun í morgun frá GreenParking upp á 9.250 kr. Enginn reikningur eða ábending fyrir hvaða þjónustu þessi rukkun er. Ég googlaði GreenParking og sá að þeir sjá um vöktun við Landspítalannn. Ég kannaðist ekki við að hafa lagt bílnum við Lansann. Ég sendi fyrirspyrn á GreenParking og fékk nánast samstundis svar um að krafan hefði verið felld niður. Skýring var „Bilun í myndavélakerfi við Egilshöll.“


Fyrst ég var að fá rukkun vegna aksturs til og frá Egilshöll geri ég ráð fyrir að þúsundir annarra hafi fengið eins rukkun með tilheyrandi vanskilaálagi. Væri ekki skynsamlegt að gera þá kröfu til þessara eftirlitsaðila með bílastæðum að það sé einhver mannlegur sem fer yfir málin áður er svona reikningur er sendur út,“ segir Jón í færslu sinni. Sjá hér.


Jón svarar síðan einum í athugasemdakerfinu við færsluna: „Jú þetta endaði vel. En svona villa á ekkert að koma upp því ég hef ekkert lagt við Egilshöll. Aðeins keyrt um bílastæðið í skutluþjónustu. Síðan er það óboðlegt að rukka mig um 9.250 kr. þrátt fyrir að þetta séu mistök. Af hverju ekki að rukka mig um 300 þús. kr. fyrst það hefur ekki náðst mynd af mér við að keyra frá Egilshöll.“


Grafarvogur.net sagði fyrstur fjölmiðla frá því í vor að til stæði að setja upp myndavélar við Egilshöll og taka þar upp gjaldskyldu.  Sjá þá frétt hér.

Frétt okkar frá 17. apríl um fyrirhugaða gjaldskyldu við Egilshöll.