Eggert Skúla mætti til þeirra og sporðrenndi tólf kleinum með ískaldri mjólk
Fyrrum Grafarvogsbúinn og hinn kunni fjölmiðlamaður, Eggert Skúlason, frétta- og veiðimaður, birti skemmtilega frétt á FB-síðu sinni þar sem hann sagðist hafa mætt til þessara mætu kvenna hjá Kvenfélaginu Einingu í Holtahreppi og þær hafi boðið honum upp á kleinur. Hann segist hafa sporðrennt tólf kleinum með ískaldri mjólk.
Var ekkert að tvínóna við það kappinn.

Eggert Skúlason, frétta- og veiðimaður, þaut upp í Holtahrepp og sporðrenndi tólf kleinum með ískaldri mjólk hjá þessum mætu konum í Kvenfélaginu Einingu.
ERFITT AÐ TOPPA ÞETTA
Svona hljóðaði færsla Eggerts: „Erfitt að toppa þetta. Kvenfélagið Eining hér í Holtahreppi hringdi áðan. „Erum að steikja kleinur. Komdu." Brenndi upp á Laugaland og fékk að borða upp úr steikarpottinum nánast. Þetta er hluti af þeirra fjármögnun en sá ekki högg á vatni þó að ég borðaði tólf. Ég hafði gert þeim smá greiða og þessar stelpur kunna að þakka fyrir sig. Sjóðheitar og stökkar kleinur með ískaldri mjólk.“
Eggert bjó í Grafarvoginum um árabil og síðast í Hamrahverfinu.
Hann býr núna í Kópavogi. - JGH

Stökkar og fínar.

Búinn að sporðrenna fimm og sjö eftir á fatinu. „Fékk að borða nánast upp úr steikarpottinum.“


