Skömmu eftir að við vorum á ferð í gærdag þá var allt fjarlægt við frískápinn
Skömmu eftir að við vorum á ferð um Spöngina í gærdag voru bretti og ávaxtakassar sem hrúgað hafði verið niður við hliðina á frískáp Rótarý við Borgarholtsskóla fjarlægðir. Snör handtök. Ekki vitum við hver fjarlægði!
Það var fyrst í góðviðrinu á þriðjudag þegar Gullinbrúin var lokuð út úr hverfinu vegna malbikunarframkvæmda sem að leið okkar lá um Spöngina og fram hjá Borgarholtsskólanum.
Þá blöstu ávaxtakassarnir við þarna - nánast eins og einhver hefði sleppt því að fara í Sorpu.
Þegar farið var þarna um í fyrradag og í gærdag voru þessi ósköp þarna ennþá og vel blaut eftir miklar rigningar.

Klukkan 19:48 í gær. Allt fjarlægt og orðið fínt og fágað. Okkur skilst að kassarni hafi verið fjarlægðir í þann mund sem frétt okkar fóru í loftið. En það breytir auðvitað engu um eðli svona frétta; þarna þarf að ganga betur um.
Við fengum á okkur ákúrur í gær um að hafa birt fréttina í þann mund sem kassarnir voru fjarlægðir. Það breytir hins vegar engu um eðli og tilurð svona frétta um slælega umgengni verslana og birgja sem vilja láta gott af sér leiða með því að leggja til matvæli í frískápinn.
Vel meint en í þetta skiptið var þetta full mikið af því góða, eins og allir geta verið sammála um.
Þetta hafði verið svona í nokkra daga og það hefur engan tilgang að vera með einhverja þöggun um málið gagnvart Grafarvogsbúum; þetta var frétt!
Vonandi verður þessi umfjöllun okkar og fleiri til þess að þarna verði betur gengið um og af meiri virðingu við hugmyndina.
Þessi frískápur Rótarý er tákn um góða hugsun og vilja í verki um að draga úr matarsóun og láta gott af sér leiða.
Borgin mætti meira að segja koma rafmagni aftur á ísskápana tvo í skýlinu; frískápnum.
Að minnka matarsóun er gott og jákvætt markmið en það er ekki sama hvernig farið er að því. - JGH

Svona hafði þetta verið í nokkra daga. Ávaxtakassarnir voru svo fjarlægðir síðdegis í gærdag.


