Mikill áhugi á tónleikunum til minningar um séra Vigfús og Elínu. Miðasala í kirkjunni
Það verður falleg stund söngva, tóna og minninga í kirkjunni okkar í Grafarvogi nk. fimmtudagskvöld, 24. september, þegar minningartónleikar um þau heiðurshjón séra Vigfús Þór Árnason og Elínu Pálsdóttur verða haldnir.
Mikill áhugi er á þessum tónleikum og hefur miðasala farið vel af stað.
Hægt er að kaupa miða í kirkjunni á opnunartíma sem og verða miðar seldir við innganginn fyrir tónleikana - verði þá einhverjir miðar þá eftir.
Stórskotalið söngvara mætir og heiðrar minningu þeirra hjóna með söng sínum.
Þetta eru þau Sigrún Hjálmtýsdóttir, (Diddú), Gissur Páll Gissurarson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Matthías Matthíasson.
Þau Diddú, Gissur Páll og Jóhann Friðrik hafa margoft komið fram í kirkjunni og yljað okkur með söng sínum. Diddú og Gissur Páll voru til dæmis einsöngvarar við útför Elínar sl. haust.
Stjórnendur tónleikanna verða Guðný Einarsdóttir, Lára Bryndís Eggertsdóttir og Jónas Þórir Þórsson en þær Guðný og Lára eru organistar kirkjunnar.
Höldum minningu þeirra hjóna í heiðri og gefum okkur tíma og mætum á tónleikana.
Þetta verður mikil og falleg stund.
- JGH

Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, hefur margoft sungið í Grafarvogskirkju. Hún mætir að þessu sinni með „strákunum“ Gissuri Páli, Jóhanni Friðriki og Matta Matt.

Þau hjón séra Vigfús Þór Árnason og Elín Pálsdóttir létust með aðeins sex mánaða millibili á síðasta ári.


