Skopmynd Moggans í dag - „hann er nú heillandi karlinn“
TRUMP OG ÞORGERÐUR KATRÍN. Skopmyndateiknari Morgunblaðsins nýtir sér ummæli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um Donald Trump Bandaríkjaforseta í mynd dagsins.
Býsna skemmtileg mynd - þetta er jú skopmynd!
Þær Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín hittu Trump á fundi Atlantshafsbandalagsins í Haag í Hollandi um síðustu helgi og áttu við hann stutt spjall. Hafði Þorgerður á orði við Vísi að karlinn væri nú heillandi.
En þar sagði: „Þú hittir Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna?“
„Já, ég náði reyndar líka að taka í spaðann á honum Trump, hann er nú heillandi karlinn. Hann má eiga það.“
Þess má geta að
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna,
hjólaði í kjölfarið í Þorgerði Katrínu fyrir að kalla Donald Trump „heillandi“.
- JGH