Andúð stjórnmálamanna á atvinnulífinu er séríslenskt fyrirbæri
HLUTHAFASPJALLIÐ. VIÐSKIPTI. Er svo komið að stjórnmálamenn á Íslandi hafi horn í síðu atvinnulífsins? Um þetta er fjallað í nýjasta þætti hlaðvarps okkar Sigurðar Más Jónssonar, HLUTHAFASPJALLINU, á Brotkast.is
Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá, er gestur þáttarins að þessu sinni og í spjalli hans við Sigurð Má Jónsson, er þessari spurningu varpað fram og farið yfir málinu.
Þórður segir að Ísland skeri sig algerlega frá hinum Norðurlöndunum vegna augljósrar andúðar og jafnvel neikvæðni margra stjórnmálamanna í garð atvinnulífsins.
Hann segir að þetta komi rækilega í ljós í umræðunni um veiðigjaldafrumvarpið.
Þá kemur fram hjá honum að stjórnkerfi og utanríkisþjónustur hinna Norðurlandanna séu eindregnustu talsmenn atvinnulífsins og þjóðhöfðingjar viðkomandi landa setji sig aldrei úr færi við að aðstoða og kynna fyrirtæki viðkomandi lands.
En hvers vegna þessi andúð? Að mati Þórðar er þetta hugsanlega vegna þess að menn séu ekki enn búnir að vinna sig út úr atburðum bankahrunsins. - JGH

Þórður telur að neikvæðni í garð atvinnulífsins komi rækilega í ljós í umræðunni um veiðigjaldafrumvarpið.