Grafarvogur.net á ferð í Svíþjóð - sólarlagið við vatnið Vättern í Svíþjóð
27. júní 2025
AF FIMMTÁNDU HÆÐ! Grafarvogur.net hefur verið á ferð um Ítalíu og Svíþjóð að undanförnu og mun á næstunni birta nokkrar fréttir úr ferðinni.
Hér má sólarlagið við vatnið Vättern í Svíþjóð í fyrrakvöld en það er annað stærsta stöðuvatnið þar í landi.
Myndin er tekin út um glugga á fimmtándu hæð hótelsins Quality Match Hotel í Jönköping sem er yfir 100 þúsund manna bær við syðsta enda vatnsins. - JGH

Hæsta hótelið í Jönköping og tekið í notkun fyrir nokkrum árum.

Þessir steinar fyrir utan hótelið minntu óneitanlega á útilistaverkið hans Sigurðar Guðmundssonar á Djúpavogi - Eggin í Gleðivík.