Skákin að fara á fullt aftur hér í Grafarvogi! Skákin skerpir á einbeitingu og hugsun barna

27. ágúst 2026

„Skákin er að fara á fullt aftur hér í Grafarvogi eftir sumarleyfi en fyrsta æfingin hjá okkur í Skákdeild Fjölnis hefst fimmtudaginn 10. september og við verðum að venju í Rimaskóla,“ segir Helgi Árnason, skákfrömuður og formaður skákdeildar Fjölnis.


Hið gróskumikla starf Skákdeildar Fjölnis í Grafarvogi er löngu orðið þekkt hér á landi og hefur hróður þess borist víða.


Það er svo sannarlega Áfram Grafarvogur þegar kemur að skákinni og er ánægjulegt hve áhuginn er mikill hjá bæði stúlkum og strákum.


Helgi segir að æfingarnar verði á fimmtudögum frá kl. 16:30 til 18:10. Fimmtudagar eru því skákdagar í Grafarvogi.


„Það hefur verið afar góð mæting á æfingarnar undanfarin ár og við keppumst við að taka vel á móti öllum. Við bjóðum upp á gott skipulag og leiðbeinendur á öllum aldri,“ segir Helgi.


„Svo má ekki gleyma því að það er boðið upp á skúffuköku og verðlaunahátíð í lok hverrar æfingar,“ segir Helgi.


Svo sannarlega blómlegt skákstarf í Grafarvogi. Klukkur tifa og taflmenn fjúka á hvítum reitum og svörtum.


Við á Grafarvogur.net segjum einfaldlega að gyðjan búi í Grafarvogi; skákgyðjan. - JGH

Skúffukakan er ómissandi í lok hverrar æfingar og svo er oft nammi líka í boði. Auðvitað; verið að búa til smá stemningu.

Stelpur og strákar á æfingu hjá Fjölni. Það er ánægjulegt hvað bæði kynin eru dugleg að mæta á æfingarnar og una sér vel saman við taflborðin.

Það er bara riddarinn sem getur hoppað yfir aðra taflmenn í skákinni. Það hjálpar vissulega að þau börn sem mæta á sína fyrstu æfingu þekki aðeins til skákarinnar og kunni t.d. mannganginn og séu aðeins byrjuð að tefla.