Þeir eru margs konar bílarnir á stæðinu við Spöngina. Hér er bíll með „augnhár“
26. ágúst 2026
Þeir eru margs konar bílarnir á stæðinu við Spöngina. Þegar við vorum á ferð þar um á dögunum rákumst við á þennan Honda-bíl og viti menn; hann var með „svört augnhár“!
Satt best að segja þá vakti þetta uppátæki ákveðna kátínu.
Ekki oft sem maður sér þetta.
Dekur við bíla er margs konar en að setja „augnhár“ fyrir ofan ljósin er frumlegt.
Þetta kallar hugsanlega á góðan maskara - ekki satt? - JGH

Þessi var á stæðinu við Spöngina í Grafarvogi á dögunum. Vakti eðlilega eftirtekt - og kátínu. Frumlegt.

