Æsispennandi páskaeggjaleit við Gufunesbæ nk. sunnudag - yfir 1 þúsund egg í boði
Það verður heldur betur fjör við Gufunesbæinn í Grafarvogi nk. sunnudagsmorgun kl. 10:00 þegar æsispennandi páskaeggjaleit fer þar fram en um árlegan viðburð er að ræða af hálfu sjálfstæðismanna í Grafarvogi, Árbæ, Selási, Ártúni og Norðlingaholti.
Yfir 1 þúsund egg eru í boði og bíða þess að koma í leitirnar. Fyrir utan leitina að páskaeggjunum verður boðið upp á ratleik, húlakeppni og kaffi fyrir foreldra.
Eggjaleitin hefst kl. 10:00. Allir fá eitt súkkulaðiegg fyrir hvert fundið skrauteegg; hámark tvö egg á einstakling til að byrja með. Eggin verða falin nokkrum sinnum þannig að reynt er að tryggja að allir fái tækifæri til að fá egg.
Þessi páskaeggjaleit sjálfstæðismanna hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og mikill fjöldi fólks mætt á svæðið til að taka þátt í stuði og smá sætindum í leiðinni.
Nú mæta allir í Gufunesbæin á sunnudagsmorgun! - JGH

Þetta er ekki bara páskaeggjaleit heldur líka alvöru húlakeppni og ratleikur. Mynd frá keppninni í fyrra.

Páskaeggjaleit þar sem yfir 1 þúsund páskaegg eru í boði. Fjölmenni hefur jafnan verið á þessum skemmtilega árlega viðburði við Gufunesbæinn.

Nammi, namm. Smá stuð og sætindi.

Já, já, takk fyrir.

Páskakanínan verður á ferðinni í Gufunesi að vanda nk. sunnudagsmorgun og mun fela eggin á svæðinu.

