Afbragðsgóð ræða séra Geirs Waage við útför Davíðs Oddssonar

14. mars 2026

Mörgum hefur orðið tíðrætt um afbragðsgóða ræðu séra Geirs Waage í minningarorðum hans við útför vinar síns Davíðs Oddssonar sl. föstudag frá Hallgrímskirkju. Kynni þeirra náðu allt aftur til menntaskólaáranna í MR.


Það var ekki aðeins ræðan sem hreif fólk heldur allt atferli Geirs við útförina og fyrir vikið varð hún í senn hátíðleg, virðuleg, falleg - og á sinn hátt látlaus. Börn þeirra Geirs og Davíðs eru makar; þau Þorsteinn Davíðsson og Heiðrún Geirsdóttir. Þau eiga tvær dætur. 


Ræða Geirs var nokkuð löng af minningarorðum að vera - og kom það í sjálfu sér ekki á óvart - en hún hélt athygli allra allan tímann fyrir það hversu innihaldsrík hún var, vel orðuð og flutt án allrar tilgerðar.   - JGH 

Séra Geir Waage. Sjónvarpað var frá útförinni og var víða fylgst með henni á vinnustöðum og heimahúsum.

Útför Davíðs Oddssonar þótti í senn virðuleg, falleg og látlaus. Mörgum hefur orðið tíðrætt um hversu vel sr. Geir Waage fórst þetta úr hendi. (Mynd fengin á vef Vísis. Ljósm. Vilhelm)