Sigrún Ásta sló Heiðu út af laginu með 523 nýju íbúðunum. Salurinn: „Þetta er víst rétt.“
Mesta hitamálið í Grafarvogi til nokkurra ára hefur verið þétting byggðar í Grafarvogi sem núverandi meirihluti í borginni hefur að mestu sett á ís, fyrir utan lóðirnar við Hverafold og Starengi. Þess vegna kom það á óvart hversu mikið borgarstjóri var sleginn út af laginu með fyrstu spurningu fundarins sem Sigrún Ásta Einarsdóttir bar fram. Ætla hefði mátt að borgarstjóri væri sérstaklega vel undirbúinn varðandi spurningu um þéttingu byggðar í hverfinu.
Sigrún Ásta hefur látið mjög að sér kveða gegn þéttingu byggðar í Grafarvogi og verið öflug og skelegg á fundum um málið.
Hún hóf spurningu sína á því að rifja upp að íbúar í Grafarvogi hefðu sent inn 1.386 athugasemdir og mótmælt kröftuglega þéttingu 340 íbúða sl. vor. (Sjá kort og frétt Grafarvogur.net hér til upprifjunar)
Hún sagði síðan að þegar umsagnarfresturinn hefði runnið út, þ.e. 15. maí sl., hefði borgarráð engu að síður samþykkt þennan sama dag Húsnæðisætlun Reykjavíkurborgar 2025 til 2034 þar sem talað væri um 523 íbúðir á þéttingarreitum í Grafarvogi.
Heiða þverneitaði að þetta væri rétt hjá Sigrún Ástu og varð kurr í salnum. „Þetta er víst rétt,“ fékk borgarstjóri að heyra mjög ákveðið frá fundarmönnum.
SIGRÚN ÁSTA GAF SIG EKKI
Sigrún Ásta gaf sig ekki og spurði Heiðu Björg af ákveðni hvar þessar 183 umfram-íbúðir við fyrrnefndar 340 íbúðir ættu að vera í Grafarvogi, skv. Húsnæðisáætluninni, og fylgdi svo eftir með þessari spurningu: „Munt þú beita þér fyrir að Húsnæðisáætlunin verði leiðrétt fyrst þetta eru ekki réttar tölur?“
Heiða svaraði henni ekki og bað um næstu spurningu.
En hvað er rétt og rangt í þessu?
Það fer ekkert á milli mála að í Húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar, sem samþykkt var 15. maí sl. og Heiða, þá orðin borgarstjóri (21. feb. 2025) og skrifaði undir, er gert ráð fyrir 523 nýjum íbúðum í Grafarvogi.
Það má glöggt sjá hér
í
Húsnæðisáætluninni
á bls. 62. Þar fer ekki á milli mála varðandi áætlaðan fjölda íbúða til úthlutunar í Grafarvogi.
- JGH

Skýrt og skorinort: 523 íbúðir. Úr Húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar sem samþykkt var 15. maí í fyrra eða sama dag og umsagnarfresturinn rann út varðandi 340 nýjar íbúðir í Grafarvogi og Grafarvogsbúar mótmæltu kröfuglega.

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri við upphaf fundarins í gær. Hún virtist slegin út af laginu í byrjun fundarins við spurningu Sigrúnar Ástu.

Klukkan rúmlega fimm og beðið eftir borgarstjóra. „Tafðistu í umferðinni,“ var hún spurð um og hún neitaði því. Þá skellihló salurinn.

Lykilbyggingarsvæði borgarinnar næstu tíu árin, skv. Húsnæðisáætluninni.

Núverandi meirihluti setti þéttingu byggðar í Grafarvogi á ís - og sagði Heiða Björg á fundinum í gær að það væri næsta meirihluta að ákveða þéttingu byggðar í hverfinu.

Við Hverafold 7, fyrir neðan Torgið. Það er búið að úthluta þessari lóð.

Starengi. Búið að úthluta þessari lóð. Þarna verður byggt alveg ofan í hringtorgið við golfvöllinn.

Liggurinn munurinn á 340 íbúðunum og þeim 523 sem Sigrún Ásta nefndi við borgarstjóra í stórfelldum íbúðakjarna fasteignaþróunarfélagsins Reita í Spönginni? Þar gera Reitir ráð fyrir að byggja allt að 170 íbúðir í nokkrum blokkum, eins og sjá má á þessari mynd.


