Hitafundur með Heiðu borgarstjóra. Fundarmönnum fannst mörg svörin ansi rýr

10. febrúar 2026

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hélt fund síðdegis með Grafarvogsbúum í bókasafninu í Spönginni og sannast sagna átti borgarstjóri nokkuð í vök að verjast og þótti fundarmönnum oft á tíðum svör Heiðu ansi rýr.  Við segjum betur frá fundinum á morgun en fundurinn var liður í fundaröðinni Samtal borgarstjóra við borgarbúa.


Heiða Björg lét bíða eftir sér og klukkan var orðin átta mínútur yfir fimm þegar hún mætti til leiks - of sein. Auðvitað var hún spurð að því hvort hún hefði tafist í umferðinni við gatnamót Strandvegar og Rimaflatar.


Hún svaraði því neitandi - og þá hló salurinn dátt. Tónninn á fundinum var sleginn. Mátti skilja á orðum Heiðu að hún hefði farið aðra leið.


ÞÉTTINGIN MÁL NÆSTA MEIRIHLUTA - SEGIR HEIÐA

Helstu tíðindi fundarins voru þau að þéttingu byggðar í Grafarvogi hefur að mestu verið slegið á frest af núverandi meirihluta - og var salurinn alls ekki sannfærður um að búið væri að slá þéttinguna af.


Umferðarmálin fengu mikla umfjöllun - og ekki síst gatnamótin við Strandveg og Rimaflöt sem flestir Grafarvogsbúar eru bálreiðir yfir. Samgöngustjóri borgarinnar gaf í skyn að breytingin á ljósunum hafi verið mistök og að þau verði færð í fyrra horf.


Þá mátti skilja á Heiðu að vel komi til greina að litlu strætisvagnarnir gangi inn í Gufuneshverfið en borgin var gagnrýnd harðlega fyrir að fara í uppbyggingu á því hverfi án nokkurra innviða þar. Það hlyti að vera hægt að fjölga bílastæðum.


SPÖNGIN - HAFIÐ ÞIÐ EKKERT LÆRT AF GRÆNA GÍMALDINU?

Þá urðu töluverðar umræður um Spöngina - sem fasteignafélagið Reitir eiga - og stórfellda stækkun hennar. Framkvæmdunum var líkt við virki og voru fundarmenn alls ekki sáttir við þessa stækkun og hve mikið bílastæðum fækkar á svæðinu.


Hver verslar í verslunarmiðstöð sem er með fá bílastæði? - spurðu menn. Þá hafa íbúar áhyggjur af sólarleysi og skuggamyndun og ræða um Spöngina sem nýtt gímald!


Hafið þið ekkert lært af Græna gímaldinu í Breiðholti? - var hrópað!


Einn sagði: „Þið komið hingað í hverfið og talið á þann hátt sem enginn venjulegur maður skilur.“ Og bætti við: „Manni finnst eins og þegar þið í Ráðhúsinu mætið hingað upp eftir að þá sé það eins og innrás. Hvað er annars allt þetta fólk í ráðhúsinu að gera?


TALIÐ UM SAMRÁÐ EN HLUSITÐ EKKI

Svo kom þetta:  „Þið talið um ramráð og samtal - en hlustið aldrei á okkur.“


Svo þetta: „Hvað er þetta með Borgarlínuna og Gufunes. Þú sagðir að Borgarlínan myndi bjarga samgöngumálunum í Gufunesi en geturðu sagt íbúum þar hvenær hún kemur.“


Meira um einstök mál á morgun og frekari útskýringar Heiðu og borgarstarfsmanna. - JGH