Gleymdist úti í vetur en fyrr má nú aldeilis fyrrvera!

20. maí 2026

Það er sagt að nýir vendir sópi best og það sýnist svolítið til í því þegar horft er á þennan strákúst sem keyptur var fyrir nokkrum árum - þó ekki kjörtímabilum - og gleymdist óvart úti í vetur.


Hann var nú aðeins farinn að bogna blessaður í fyrrasumar en fyrr má nú aldeilis fyrrvera eins og þeir Halli og Laddi orðuðu það svo skemmtilega á sínum tíma.


Sú setning var einmitt heiti Roy Rogers-plötunnar sem þeir bræður gáfu út árið 1977 og gerði allt vitlaust enda hafði hún marga góða frasa að geyma. Meðal annars: „Hættu að telja...“


Hér gæti orðalagið að bogna en ekki brotna einnig átt við um þennan ágæta strákúst.


Svo var það Bíólagið hjá Stuðmönnum þar sem Svartipétur réðst í bankann með byssuhólk og ....snúðu skafti, aurinn eins og skot kemur fyrir.


Það er svo sem hægt að snúa þessu skafti, það er ekki mjög snúið þótt það sé bogið. - JGH

Garðverkfærin tínd til úr bílskúrnum í dag en þessi ágæti kústur hafði hins vegar vetrardvöl úti með sýnilegum afleiðingum.

Þessi gleymdist úti í vetur en fyrr má nú aldeilis fyrrvera.