Sagan af krossinum við Grafarvogskirkju - snjöll hugmynd hjá séra Vigfúsi Þór
Séra Vigfús Þór Árnason, fyrsti sóknarprestur okkar Grafarvogsbúa, hefði orðið áttræður í dag, 6. apríl. Hann andaðist á Landspítalanum 27. febrúar á síðasta ári.
Þau hjón Elín Pálsdóttir og séra Vigfús voru mjög samrýmd og byggðu upp söfnuðinnn í Grafarvogi af mikilli eljusemi.
Séra Vigfús var sóknarprestur en í senn mikill framkvæmdamaður, fékk oft snjallar hugmyndir og kom þeim í verk.
Sagan af krossinum við Grafarvogskirkju er gott dæmi þar um. Fljótlega eftir að söfnuðurinn fékk lóðina við Fjörgyn var það eitt af fyrstu verkum hans að fá aflagðan rafmagnsstaur sem var fyrir botni Grafarvogs og gera að krossi við Grafarvogskirkju.
Það var
Ingjaldur Eiðsson sóknarnefndarmaður
sem tók að sér að laga rafmagnsstaurinn til og koma honum fyrir á kirkjulóðinni þar sem hann stendur enn. Fallegur og virðulegur kross.
Við krossinn hafa oft á tíðum verið helgistundir og guðsþjónustur - þegar viðrað hefur til þess.
Rafmagnsstaurinn hafði áður það verkefni að flytja birtu í lífið, einmitt eins og kristin trú snýst um.
Þetta var snjöll og góð hugmynd hjá séra Vigfúsi.
Blessuð sé minning hans og þeirra hjóna en Elín lést í ágúst sl., aðeins rúmu hálfu ári eftir að hún syrgði heittelskaðan eiginmann sinn. - JGH

Krossinn sómir sér vel við hliðina á Grafarvogskirkju og vekur athygli allra sem ganga á göngustígnum fyrir neðan kirkjuna.

Séra Vigfús Þór með útimessu. Hann var í senn mikill framkvæmdamaður og kom hlutum í verk - líkt og þessi litla saga um það þegar hann gerði gamlan rafmagnsstaur að krossi á lóð kirkjunnar áður en hún var reist. Helgur reitur.

Kirkjan í byggingu og krossinn tákn um helgan stað. Vinna við byggingu kirkjunnar hófst árið 1991.

Úr bókinni Grafarvogssókn 25 ára. sem Sigmundur Ó. Steinarsson skráði. Hér er m.a. mynd af því þegar rafmagnsstaurinn var tekinn upp með krana og fluttur á lóð Grafarvogskirkju.

Frá vígsluveislunni í Grafarvogskirkju 18. júní árið 2000. Frá vinstri: Biskupshjónin frú Kristín Þórdís Guðjónsdóttir og herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, og sóknarprestshjónin, frú Elín Pálsdóttir og séra Vigfús Þór Árnason.

Krossinn er bæði látlaus og virðulegur - og á sér góða sögu.


