Gleðilega páska!
Grafarvogur.net óskar lesendum sínum gleðilegra páska og áréttar þakklæti sitt fyrir frábærar viðtökur frá því vefurinn fór í loftið fyrir rúmi ári.
Á föstudeginum langa minnast kristnir menn krossfestingar Jesú Krists en á páskadegi upprisu hans.
Jesús var handtekinn og krossfestur á síðasta föstudegi fyrir páska en Gyðingar héldu páskahátíð löngu fyrir fæðingu frelsarans.
Á vísindavef Háskóla Íslands segir: „Páskar Gyðinga eru svokölluð föst hátíð sem alltaf er haldin á sérstökum mánaðardegi samkvæmt tímatali Gyðinga.
Kristnir menn minntust hins vegar upprisu Krists, það er páskadagsins, ætíð á sunnudegi og miðuðu hátíðina við fyrsta sunnudag eftir fyrsta fulla tungl eftir jafndægur á vori. Páskarnir urðu því svokölluð færanleg hátíð.“
Það verða víða veislur í dag þar sem fjölskyldur koma saman og páskalambið gamla góða prýðir væntanlega borðhaldið á flestum heimilum.
- JGH

Það verða að víða veislur í dag þar sem fjölskyldur koma saman og páskalambið gamla góða prýðir væntanlega borðhaldið á flestum heimilum.

Páskaeggin eru alls konar - það þarf ekki alltaf súkkulaði til.


