RÚV birti í kvöld nýja könnun frá Gallup sem sýnir meira fylgi D-lista en í könnun Maskínu
RÚV birti í kvöld nýja könnun frá Gallup sem mælir Sjálfstæðisflokkinn með mesta fylgið í borginni og 8 fulltrúa og skv. könnuninni gæti flokkurinn myndað meirihluta með Miðflokknum (3 fulltrúar) og Framsóknarflokknum (1 fulltrúi) og fengi þannig 12 borgarfulltrúa af 23.
Þetta yrði því eins manns meirihluti og tæpari gæti hann ekki orðið.
Spennan er því afar mikil fyrir morgundaginn og ljóst að kosningarnar eru mjög tvísýnar.
Könnun Gallup sem RÚV birtir sýnir heldur meira fylgi við D-lista en mældist í könnun Maskínu fyrir Vísi fyrr í vikunni, eða 8 fulltrúa í stað 7 fulltrúa hjá Maskínu.
Samfylkingin er með jafnmarga fulltrúa í báðum könnunum, eða 5 borgarfulltrúa. Viðreisn fær 2 fulltrúa, skv. Gallup, en var með 3 fulltrúa hjá Maskínu.
Miðflokkurinn fær 3 fulltrúa hjá Gallup en fékk 2 í könnun Maskínu.
Framsóknarflokkurinn fær 1 borgarfulltrúa í báðum könnunum.
Þá er Sósíalistaflokkurinn inni með 1 borgarfulltrúa, skv. Gallup, en náði ekki inn manni hjá Maskínu.
Flokkur fólksins nær manni ekki inn skv. Gallup en var með 1 mann inni skv. Maskínu.
Ja, spennandi verður það á morgun, svo mikið er víst.
- JGH

Könnun Maskínu fyrr í vikunni fyrir Vísi.

Könnun Gallup sem RÚV birti í kvöld.

