Um 40 milljarðar í hjóla- og göngustíga!

16. maí 2026

Samgöngusáttmálinn hjá Betri samgöngum ohf. hefur verið uppfærður og hljóðar upp á 311 milljarða króna, líkt og við sögðum frá í gær. Þar af fara 130 milljarðar í Borgarlínuna og 40 milljarðar í hjóla- og göngustíga. Bíleigendur standa að stærstum hluta undir fjármögnun framkvæmda Samgöngusáttmálans.


Eftir uppfærslu Samgöngusáttmálans er áætlað að fjárfesta í innviðum fyrir alla ferðamáta fyrir 311 milljarða króna í eftirfarandi hlutföllum:


Stofnvegir.....................130 makr. (42%)

Borgarlínan..................130 makr. (42%)

Göngu- og hjólastígar.. 40 makr. (13%)

Umferðaröryggi............ 10 makr. ( 3%)


Þetta eru miklir fjármunir og um þetta er meðal annars tekist á í sveitarstjórnarkosningunum þótt ríkissjóður verði í aðalhlutverki þegar kemur að fjármögnuninni sem áætlað er að verði með gjöldum á bíleigendur.


Sjá frétt okkar í gær um 311 milljarða Samgöngusáttmálann og athyglisvert kort af Stofnvegum sáttmálans. - JGH

Áætlað er að um 40 milljarðar fari í hjóla- og göngustíga, skv. Samgöngusáttmálanum.

Hver er þinn traustasti fararskjóti? Hvað segir þú, hvernig er hægt að greiða þína leið?

Heimild: Ferðamáti: vilji og viðhorf, Gallup, janúar 2026