Robert Horry með fyrirlestur kl. 17 í dag, föstudag, í einum sal Sambíóanna í Egilshöll

7. ágúst 2026

Það verður svo sannarlega stemning í einum sal Sambíóanna í dag, föstudag kl. 17, þegar NBA-körfuboltastjarnan Robert Horry flytur þar fyrirlestur og situr fyrir svörum.


Enn er hægt að tryggja sér miða á þennan viðburð en Robert Horry varð sjö sinnum NBA-meistari í körfubolta, þar af þrisvar sinnum með LA Lakers.


Mikill áhugi er á fyrirlestrinum en að sögn Fjölnismanna er enn hægt að tryggja sér miða á Abler.


Robert Horry er hér á landi þessa dagana á Elite Camp í Egilshöllinni og leiðbeinir og kennir börnum og unglingum grunnstefin í þessari vinsælu íþrótt. - JGH

Sjöfaldur NBA-meistari í körfubolta, Robert Horry, í Egilshöllinni. Hann verður með áhugaverðan fyrirlestur í einum sal Sambíóanna kl. 17 í dag, föstudag.