Bræðurnir Björn Helgi og Jón Haukur Baldvinssynir mennirnir á bak við NBA-stjörnurnar í Grafarvogi

7. ágúst 2026

Það eru bræður úr Garðabænum sem eru mennirnir á bak við NBA-stjörnurnar í Grafarvoginum þessa dagana. Heita Björn Helgi og Jón Haukur og eru Baldvinssynir. Líflegir og hressir.


Þeir eru með Elite Camp-körfuboltabúðirnar á Íslandi og það var gott hjá þeim Fjölnismönnum að fá þá til að koma með NBA-stjörnurnar og Elite Camp þetta árið í Grafarvoginn, Egilshöllina.


Allt að gerast í Grafarvoginum þessa dagana. Íslandsmótið í golfi og NBA-stemning í Egilshöllinni þar sem yfir hundrað krakkar æfa af kappi í körfuboltabúðum Elite Camp og þiggja góð ráð frá NBA-stjörnunum og fylgdarliði þeirra; alls um tíu manns.


Bræðurnir eru synir Baldvins Jónssonar, fyrrum auglýsingastjóra Morgunblaðsins og markaðsmanns með meiru.


Þess má geta að Baldvin flutti inn Kinks til Íslands á sínum tíma og gerði hljómsveitin allt vitlaust í Austurbæjarbíói.


Framtakssamir feðgar í meira lagi. - JGH 

Faðir þeirra, Baldvin Jónsson, flutti inn hljómsveitina Kinks á sínum tíma en þeir bræður Jón Haukur og Björn Helgi flytja inn NBA-stjörnur.