NBA stemning í Egilshöll: Robert Horry og Irving Thomas miðla reynslunni til ungra Íslendinga
Það er heldur betur körfuboltahátíð í Egilshöll í þessari viku! Ungir og efnilegir körfuboltamenn hafa verið í þjálfun hjá Elite Camp þar sem NBA stjörnur eins og Robert Horry og Irving Thomas, ásamt öðrum öflugum stjörnum hafa leitt æfingarnar.
Horry, sem vann hvorki meira né minna en sjö NBA meistaratitla á ferlinum, og Thomas sýndu ómetanlega innsýn í heim atvinnumennskunnar og miðluðu af þekkingu sinni til næstu kynslóðar. Myndirnar sýna einbeitinguna og gleðina á vellinum.
Ekki missa af tækifærinu!
Eyþór Ívar Jónsson, stjórnarmaður í Fjölni, segir að fyrir þá sem vilja kynnast Robert Horry enn betur, þá muni hann flytja fyrirlestur í kvöld, föstudag, kl. 17:00 í einum sal Sambíóanna.
„Þetta er einstakt tækifæri til að heyra sögur frá einum sigursælasta leikmanni í sögu NBA og enn er hægt að tryggja sér miða á Abler. Ég skora á alla að tryggja sér sæti á þennan magnaða viðburð,“ segir Eyþór Ívar. - JGH

Robert Horry, sjöfaldur NBA-meistari í körfubolta í Egilshöllinni að þjálfa krakka og unglinga í þessari vinsælu íþrótt.

Áhugi barnanna leynir sér ekki. Kappið er mikið og hér eru tveir að skjóta á sömu körfuna.

Búningar krakkanna bera nafn Robert Horry.

Lífið er körfubolti frá morgni til kvölds þessa dagana hjá yfir hundrað krökkum á Elite Camp í Egilshöllinni.


