Ríkið hefur bíleigendur að féþúfu - skattar 115 milljarðar; til Vegagerðarinnar 55 milljarðar
Grafarvogsbúinn Þórir Garðarsson skrifar fróðlega grein í Morgunblaðið í morgun þar sem glöggt kemur fram að ríkið hefur bíleigendur að féþúfu - og er það svo sem ekkert nýtt; skiptir þá ekki máli hvaða flokkar hafa verið við völd. Það er hamast á bílgreininni í sköttum.
Í grein Þóris kemur fram að bílgreinin í heild sinni greiðir yfir 115 milljarða í skatta með einum eða öðrum hætti á meðan það sem fer til Vegagerðarinnar nemur um 55 milljörðum kr., þar af um 34 milljarðar í beinar framkvæmdir á vegakerfinu.
Þórir segir í grein sinni: „Umhverfis- og eldsneytistengdir skattar, þar með talið kílómetragjald, kolefnisgjöld og virðisaukaskattur af eldsneyti, nema samanlagt umtalsverðum fjárhæðum, áætlað um eða yfir 100 milljörðum króna. Við bætast svo vörugjöld af innflutningi og sölu bifreiða, sem má áætla á bilinu 10-15 milljarða króna á árinu plús vsk. Heildartekjur ríkissjóðs af bifreiðatengdri starfsemi eru því að jafnaði a.m.k. tvöfalt hærri en kostnaður við vegakerfið.
Einkabílar eru um 86% allra ökutækja í umferð og standa því undir stærstum hluta þessara tekna.“
Fróðlegt. - JGH

Grein Grafarvogsbúans Þóris Garðarssonar í Morgunblaðinu í morgun.

Þessa mynd tók ég þegar ég ók heim af íbúafundinum með borgarstjóra á bókasafninu sl. mánudag. Er hér í biðröð við gatnamótin umdeildu; Strandveg, Rimaflöt og Gufunesveg. Löng röð fyrir aftan mig.

