Þriðjungur sem tók þátt í útboði Íslandsbanka búinn að selja með miklum hagnaði
HLUTHAFASPJALLIÐ. VIÐSKIPTI. Þriðjungur þeirra sem keyptu í útboði Íslandsbanka eru búnir að selja bréf sín. Þetta eru um 10 þúsund einstaklingar.
Þetta kemur fram fram í nýjasta þætti hlaðvarps okkar Sigurðar Más Jónssonar, Hluthafaspjallinu, á Brotkast.is.
Annar tveggja gesta í Hluthafaspjallinu að þessu sinni er Helgi Vífill Júlíusson, hlutabréfagreinandi hjá IFS/Reitun, og í spjalli þeirra Sigurðar Más, vangaveltast þeir með það hvernig markaðurinn raðast upp á næstunni en bæði Íslandsbanki og Arion banki hafa sent formlegt bréf til stjórnar Kviku um sameiningu.
Ljóst er að fjöldi einstaklinga tók eingöngu þátt í útboðinu á hlut ríkisins í Íslandsbanka þar sem ríkisstjórnin með Daða Má Kristófersson, fjármálaráðherra, í fararbroddi veitti mjög góðan afslátt á bréfunum.
Þannig hafa þeir ríflega 10 þúsund einstaklingar, sem þegar hafa selt bréf sín í bankanum, selt bréfin á genginu um 118 til 119, bréf sem þeir keyptu jú á genginu 107 í útboðinu. Sem gerir jú um 11% hagnað.
- JGH .