Íslenski fáninn 110 ára!
ÍSLENSKI FÁNINN 110 ÁRA! Það er áhugaverð og skemmtileg aðsend grein eftir Snorra Snorrason í Morgunblaðinu í dag um íslenska fánann.
„Stofndagur íslenska fánans er talinn 19. júní 1915 og á hann því 110 ára afmæli í ár 2025. Konungsúrskurður um sérfána fyrir Ísland er í raun frá 22. nóvember 1913 um gerð fánans, en gefinn út og staðfestur 1915,“ segir Snorri í grein sinni.
Hann spyr síðan hvað það sé sem tengi okkur saman sem þjóð? Og svarar í raun spurningunni sjálfur. „Er það ekki landið, tungan, menningin, sagan og þjóðfáninn?“ bætir hann við.
Við Grafarvogsbúar erum svo heppnir að eiga fremsta fánasafnara landsins, Ólaf Sverrisson íbúa í Hamrahverfinu. Hann á 215 fána og flaggar nánast á hverjum degi. Í umfjöllun um íslenska fánann birtum við að sjálfsögðu mynd af íslenska fánanum blakta við hún hjá Ólafi í Hamrahverfinu. - JGH

Grein Snorra í Morgunblaðinu í dag.