Rigningasumar að baki. Úrkomudagar í Reykjavík voru 52 frá júní og út september
Nýliðið sumar telst rigningasumar í höfuðborginni. Alls voru úrkomudagar 52 borginni frá byrjun júní til loka september. Þetta er vel yfir meðallagi. Morgunblaðið segir frá.
Í fréttinni, sem Sigtryggur Sigtryggsson blaðamaður skrifar, segir: „Veðurstofusumarið er einum mánuði lengra en skilgreint sumar Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar sem telur ekki september með. Álykta má af nýbirtu tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar að þetta verði að teljast rigningasumar. Úrkoma í Reykjavík mældist 311,5 millimetrar (mm) mánuðina fjóra, sem er um 30% umfram meðalúrkomu áranna 1991-2020.
Í Stykkishólmi mældist heildarúrkoma sumarsins 290,1 mm, sem er 50% umfram meðalúrkomu áranna 1991-2020.
Á Akureyri mældist úrkoma þessa fjóra sumarmánuði 158,3 mm, sem er 5% umfram meðallag.
Á Dalatanga mældist sumarúrkoman 557,8 mm, sem er 10% umfram meðalúrkomu áranna 1991-2020. Júlí var þó óvenju þurr bæði á Akureyri og á Dalatanga.“
Þá kemur fram í fréttinni að meðalhiti sumarsins í Reykjavík hafi verið 10,2 stig, eða 0,1 stigi undir meðallagi áranna 1991-2020. Meðalhiti sumarmánaðanna fjögurra er engu að síður í 41.-42. hlýjasta sæti á lista síðustu 156 ára.“
En hvað um það; rigningasumar að baki. - JGH



