Þetta eru helstu breytingar í stjórnun og íslensku viðskiptalífi á síðustu 40 árum

9. október 2026

Það var mikill heiður fyrir mig að vera boðið að halda erindi á 40 ára afmælishátíð Stjórnvísi á dögunum en ég sat í stjórn félagsins frá 2009 til 2013 og þar af sem formaður í tvö ár.


Ég hélt fyrsta erindið um morguninn og fór yfir tilurð félagsins og helstu breytingar í stjórnun á Íslandi á síðustu fjörutíu árum en félagið hét í upphafi Gæðastjórnunarfélag Íslands. Svo ánægjulega vildi til að þegar umræðan um gæðastjórnun náði nýjum hæðum hér á landi árið 1992, eða fyrir 34 árum, með átakinu um Þjóðarsókn í gæðamálum sem Gæðastjórnunarfélag Íslands, Félag íslenskra iðnrekenda og iðnaðarráðuneytið komu að, var mér boðið að halda erindi á sérstakri ráðstefnu á Holliday Inn um Þjóðarátakið og kom þá á eftir Jóni Sigurðssyni, þáverandi iðnaðarráðherra, sem setti ráðstefnuna en hann hafði verið yfirmaður minn á Þjóðhagsstofnun þar sem ég vann um tíma með námi mínu í viðskipta- og hagfræði.


Mér fannst rakið að minnast þess að 34 árum síðar væri ég í ræðupúlti á sama stað og nánast á sama tíma - en að vísu héti hótelið núna Grand Hótel - og að fjalla um gæðastjórnun og helstu breytingar sem hafa orðið á þessum fjörutíu árum. 


Ég nefndi fjögur atriði sérstaklega.


1) Píramídinn hefur verið pressaður niður með straumlínulagaðri stjórnun.


2) Konur hafa haslað sér völl sem stjórnendur en örfáar konur voru í stjórnunarstöðum fyrir 40 árum. Núna hafa þær haslað sér völl svo víða í stjórnunarstöðum að ýmsum finnst að það sé farið að halla á karlmenn við ráðningar.


3) Þarfir viðskiptavina vega miklu þyngra. Áður var það hvað hentaði fyrirtækjunum best (opnunartímar, vöruvalog fl.) en núna eru það viðskiptavinirnir sem fyrirtækin laga sig að.


4) Tæknibyltingin mikla með Veraldarvefnum, gervigreind og allri upplýsingatækni á hvaða formi sem hún er.


Ráðstefnan var mjög vel sótt og mikil orka og stemning í salnum. Bergur Ebbi, ráðstefnustjórinn, átti sinn þátt í því. Snjall maður og skemmtilegur.


En hér má sjá erindi mitt í meðfylgjandi myndbandi; Youtube., fyrir þá sem hafa áhuga.


P.S. Lada var mestseldi bíll landsins árið 1986. Hvar er hún núna?

                                                         Jón G. Hauksson, ritstjóri Grafarvogur.net

Svona var þetta árið 1986, eða fyrir fjörutíu árum, þegar Gæðastjórnunarfélag Íslands, síðar Stjórnvísi, var stofnað. (Píramídarnir eru þó aðeins eldri).

Lada var mestseldi bíll landsins árið 1986. Hvar er hún núna?

Ora var komið með núverandi slagorð fyrir fjörutíu árum. Þú opnar Ora-dós og gæðin, gæðin koma í ljós. Kristján Fjallaskáld orti um miðja nítjándu öld: „Þú gengur að gæðunum vísum.“

Í stjórnun skiptir mestu máli að sjá aðalatriði málsins og gera réttu hlutina. Að gera allt rétt og vel og vera í réttum skógi.

Sárafáar konur voru í stjórnunarstöðum árið 1984. Þessar dömur voru þá þekktustu konurnar í viðskiptalífinu.

Núna er öldin önnur. Við Benedikt Jóhannesson, útgefandi Frjálsrar verslunar um árabil, ákváðum að gefa út viðamikil blöð helguðum konum í atvinnulífinu og valdi blaðið áhrifamestu konurnar í viðskiptalífinu á hverju ári meðan við komum að þessu góða tímariti sem var stofnað árið 1939.

Hér má sjá erindið mitt á ráðstefnu Stjórnvísi.