„Ófreskjan“ hefur gengið yfir borgina - hrikaleg rigning í morgun og vindasamt
„Ófreskjan“ hefur gengið yfir höfuðborgina og okkur Grafarvogsbúa. Þeir fyrir norðan finna þó enn hressilega fyrir veðrinu og skv. Morgunblaðinu búa Siglfirðingar sig undir aðra bylgju í kvöld þegar hann snýst í hvassa norðanátt. Þök fuku af húsum á Siglufirði í morgun.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hefur birt fjölda frétta af lægðinni á FB-síðu sinni og kallar hana einfaldlega „ófreskjuna“.
Hann segir í færslu á FB-síðu sinni að loftþrýstimetið frá 1963 sé líklegast fallið en á Vatnsskarðshólum, rétt vestan við Dyrhólaey, fór loftþrýstingur niður í 937,5 hPa í morgun en 938,4 hPa var metið á Stórhöfða 1963.

Það var heldur betur hvellur í morgun í höfuðborginni. „Ófreskjan“ gengin yfir höfuðborgina og okkur Grafarvogsbúa.
Samkvæmt Veðurstofunni er gert ráð fyrir þokkalegu veðri á morgun og hægviðri um allt land þannig að þessi októberhvellur bar nafn með rentu og var harður hvellur.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að á bænum Hvammi undir Eyjafjöllum - sem er þekktur fyrir snarpar hviður í austanátt hafi vindurinn slegið í 57,9 metra á sekúndu í morgun.
Hann segir í FB-færslu sinni að hann hafi flett upp hæstu hviðumælingum í Hvammi frá því að þar var byrjað að mæla 2005.
„12 sinnum hefur mælst hærra gildi hviðunnar en þetta, mest 63,4 m/s í frægu illviðri 14. feb. 2020. Öll þessi 12 tilvik eru frá vetrinum, desember til mars. Svo snörp hviða og nú hefur hins vegar ekki mælst í Hvammi í október - og heldur ekki í nóvember,“ segir Einar.
Lægðin núna var því engin venjuleg lægð miðað við árstíma og „ófreskjan“ ágætis heiti yfir hana. - JGH

Veðurstofan spáir hægvirði um allt land í hádeginu á morgun.
Regndropar falla.


