Reynir er ekki bara reynir! Allt að því 120 tegundir. Þennan er að finna í Grafarvogi
Núna um hásumarið erum við vissulega svolítið á ferðinni á útkikkinu eftir fallegum trjám. Reynir er tígulegt tré.
Þessi hefur komið sér vel fyrir í Hamrahverfinu í Grafarvogi. Rís vel yfir bílskúrana - eða öllu heldur gnæfir yfir þá.
Þetta fundum við á Netinu:
„Reynitegundir hafa átt vaxandi vinsældum að fagna í ræktun hérlendis. Innan ættkvíslarinnar er að finna fegurstu tré og runna og eru reynitré yfirleitt harðgerð.
Margar tegundir þrífast hér vel og þroska fræ þrátt fyrir að vera ættaðar frá framandi heimshlutum. Reynitegundir sýna almennt mikla aðlögunarhæfni, samanborið við til dæmis birkiættkvíslina.
Ættkvíslin reynir (Sorbus) tilheyrir rósaættinni (Rosaceae) og til hennar teljast að minnsta kosti 80 -120 tegundir.“
Birkir, Reynir og Víðir. Allir með stórum staf.
Svona til að gæta jafnréttis; þá eru þær Björk, Ösp og Eik, einnig skrifaðar með stórum staf.
En þessi nöfn eru vissulega allt önnur Ella.
Við erum að fjalla um hann reyni.
- JGH

Gnæfir vel yfir bílskúrana.

