Gullregn er góð og falleg rigning! Ekki það að vætutíðin sé spennandi
Gullregn er víða að finna í görðum í Grafarvogi. Þetta er fallegt tré sem ber gul blóm í löngum hangandi klösum.
Svona til að bregða okkur í smá orðaleik þá finnst okkur gullregn vera „falleg rigning“ þótt ekki sé nú mikil vætutíð yfir sumarið mjög spennandi.
En er ekki sagt að regnið - svona einstaka sinnum - sé gott fyrir gróðurinn og þar með gullregnið líka.
Gullregnið á meðfylgjandi mynd - sem við tókum í blíðviðrinu á dögunum - er að finna hjá sjálfum fánamanninum í Grafarvogi, Ólafi Sverrissyni verkefræðingi.
Það má því segja að hann flaggi bæði fánum og fallegu gullregni.

Flaggar ekki bara fánum heldur fallegu gullregni líka.
Á netinu fundum við þennan fróðleik:
„Gullregn skiptist í tvær tegundir, strandagullregn og fjallagullregn Gullregn er upprunnið úr fjallasvæðum í suðurhluta Evrópu frá Frakklandi til Balkanskagans.
Gullregn er vinsælt garðtré en vanalegt er að í görðum sé ræktað garðagullregn sem er blendingsgullregn milli hinna tveggja tegunda gullregns með langa blómklasa eins og fjallagullregn og þétt blómskrúð eins og strandagullregn.“
Svo megum við til með að birta mynd af fallegu gullregni sem við sáum við Háteigsveginn þegar við brugðum okkur út fyrir bæjarlækinn á dögunum. Það er óvenju tilkomumikið.
Mér finnst rigningin góð, segir í textanum.
Ekki síst gullregnið. - JGH

Þetta gullregn rákumst við á við Háteigsveginn þegar við fórum út fyrir bæjarlækinn.
Fallegt er gullregnið hjá Ólafi Sverrissyni, verkfræðingi og fánaáhugamanni, í Grafarvogi.
Gullregnið við Háteigsveginn.

