Þeir voru ekki svona flottir hringirnir í þá gömlu góðu! HLH sungu um húlahringi og húlahopp

8. júlí 2026

Þeir blasa við litríkir húlahringirnir þegar komið er inn í Hagkaup Í Spönginni. Áberandi innan um fótbolta, bolta, spaða og alls kyns leikföng og sumarvarnig.


Þeir voru ekki alveg eins fullkomnir húlahringirnir í gamla daga, yfirleitt ljós plast-rafmagnsrör.


Húlahopp er á margan hátt meira en leikur æskuára. Þetta hopp - sem er ekkert venjulegt hopp - er skemmtileg og áhrifarík líkamsrækt sem styrkir kviðvöðva, brennir hitaeiningum og bætir líkamsstöðu.


Hringurinn er látinn snúast um mitti, fætur eða háls - en er oftast haldið uppi með því að hreyfa mjaðmirnar.


Það er visslega kúnst að halda hringnum á lofti og ekki öllum gefið.


Það hefur verið samið vinsælt lag um húlahopp.


Það gerði HLH-flokkurinn svo eftirminnilega og er lagið eftir Þórhall Sigurðsson, Ladda.


Fyrir okkur sem ekki erum lengur í léttvigt er orðið erfiðara að koma hringnum utan um sig.


En það má prófa. - JGH

Litríkir og hringlaga - þó ekki hnöttóttir eins og knettirnir. Það þarf þó að fara í hring í kringum hnöttinn og knöttinn.

Höngum þétt saman.

Lagið Húla hopp með HLH er á plötunni Í útvarpinu heyrði ég lag.